Miðvikudagur, 03. Júní 2009 23:56    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu
SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í körfubolta milli menntaskóla í Norður Karólínu-ríki á sama tíma og hann var ljósmyndaður brosandi á golfvelli í fylgd með Tiger Woods í Flórída-ríki. Jordan hefur ekki viljað tjá sig um málið en fjölmiðlafulltrúi hans sagði að körfuboltahetjan hefði ekki verið á tveimur stöðum í einu enda „væri slíkt ekki mögulegt vegna þess að líkami Jordans væri bundinn lögmálum tíma og rúms líkt og annarra“.

Margir hafa lýst yfir efasemdum um þessa fullyrðingu enda hefur Jordan áður storkað náttúrulögmálum jarðar; til er ljósmynd af honum í leik gegn Charlotte Hornets frá árinu 1991 þar sem hann sést gefa á sjálfan sig á öðrum stað á vellinum. Charles Barkley sagði jafnframt í ævisögu sinni frá árinu 1997 að þegar Bandaríkjamenn sigruðu á Ólympíuleikunum í Barcelona árið 1992 hefði hann eitt sinn séð Jordan baða sjálfan sig í sturtuklefa liðsins og rétta sér svo handklæði þegar enginn var á ferli. Velta spekingar vestanhafs því nú fyrir sér hvort Jordan hafi beitt þessu bragði sínu, að sigrast á tíma og rúmi, í leikjum í NBA-deildinni og með því stuðlað að því að Chicaco Bulls-liðið vann sex NBA-titla meðan hann spilaði með liðinu.

Einnig hefur nú rifjast upp frásögn blaðamanns frá dagblaðinu New York Times frá árinu 1999. Hann reyndi að ná sambandi við Jordan og hringdi á heimili hans. Eiginkona hans Juanita svaraði í símann og þegar blaðamaðurinn spurði eftir Jordan svaraði eiginkonan: „Ja, hann er reyndar úti að slá garðinn og að púsla með syni okkar uppi á þriðju hæð.“

Löngum hefur verið talið ómögulegt að staðsetja sig á tveimur stöðum í einu enda flokkast slíkt undir tímaflakk. Vitað er hins vegar að færustu búddar hafa getað staðsett sig á sex stöðum í einu og til eru óyggjandi sannanir fyrir því að söngvari kalifornísku hljómsveitarinnar The Offspring, Dexter Holland, hafi sést á þremur stöðum í einu í júní árið 1995, þar á meðal inni í trommusetti.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623