Fimmtudagur, 28. Maí 2009 16:57    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós
NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður rannsóknarinnar voru engar.

Joshua Weidermann, prófessor í sálfræði við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum, segir að rannsóknin hafi gengið vel á öllum sviðum og niðurstaðan sé þvert á ætlanir og spádóma fremstu fræðimanna heims. „Við athuguðum viðbrögð manna við mismunandi áreiti og könnuðum hvernig fólk tókst á við aðstæður sem það hafði aldrei upplifað áður. Úrtakið var stórt og mælingar ákaflega nákvæmar. Sameiginleg niðurstaða okkar var að rannsóknin hefði ekki leitt neitt sérstakt í ljós.“

Miklar væntingar voru bundnar við einn þátt rannsóknarinnar sem fólst í því að athuga hvernig grænmetisætur brugðust við þeim aðstæðum að vera komið fyrir inni í þyngdarafls-klefa þar sem aðstæður eru eins og á tunglinu. Einungis var í boði að neyta kjöts inni í klefanum.

Francis Hong-Wi, prófessor í eðlisfræði við Harvard-háskóla segir niðurstöðuna hafa verið sláandi. „Að vera skyndilega settur í sama umhverfi og ríkir á tunglinu getur haft gríðarleg áhrif á taugakerfi fólks - þetta þekkjum við frá geimförunum okkar hjá NASA. Við bundum því miklar vonir við að sjá hvernig grænmetisæturnar myndu bregðast við í þyngdarafls-klefanum ... en svo borðuðu þær bara kjötið og sögðu hvorki né gerðu neitt sérstakt. Flestir lögðu sig bara. Niðurstaðan í þessum þætti rannsóknarinnar sem öðrum var engin.“

Einnig var rannsakað hvernig fólk hagaði sér í umferðinni daginn eftir að því var sagt upp af maka þeirra og brotist var inn á heimili þeirra og þau beitt ofbeldi af ræningjunum. „Það gerðist bara ekki neitt. Sumir grétu reyndar en flestir keyrðu bara alveg eins og venjulega. Brutu ekki fleiri reglur en venjulega. Keyrðu ekki hraðar. Keyrðu ekki hægar. Rannsóknin leiddi ekkert í ljós og það þótti okkur stórmerkilegt,“ segir prófessor Weidermann.

Þá var rannsakað hvort kaffidrykkja í óhófi hefði mismunandi áhrif á kynþætti. „Þar var sama uppi á teningnum. Allir hresstust mikið og urðu orkumiklir stundarkorn. Það var enginn munur á Asíubúum, hvítum mönnum, blökkumönnum eða indíánum - allt var eins. Niðurstaðan var engin.“

Háskólarnir hafa nú hafið aðra rannsókn sem mun mæla áhrif þess á sjón fólks að fylgjast með tveimur hlutum samtímis í þrjár klukkustundir sem ekki eru í sömu fjarlægð frá tilraunardýrinu.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Eyjan.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/747246c5e6b81693f0869e346b390605.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/747246c5e6b81693f0869e346b390605.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623