Þriðjudagur, 07. Apríl 2009 22:58    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma klukkustund.

Talsmaður Hvíta hússins, Robert Gibbs, sagði forsetann vera afar ánægðan með að honum og vélmenninu hafi loks tekist að grafa stríðsöxina.

„Eftir áralangar deilur hafa forsetinn og vélmennið nú loks náð sáttum. Forsetinn hefur ávallt borið mikla virðingu fyrir vélmenninu þrátt fyrir hinn málefnalega ágreining sem verið hefur þeirra á milli í bráðum 40 ár.“

Vélmennið ávarpaði blaðamenn stuttu eftir sáttafundinn með forsetanum. Það sagði skrýtið að áralangar deilur þess og forsetans séu nú að baki en það sé engu að síður ánægt með niðurstöðuna. „Ég og Obama forseti höfum nú lagt áratugalangar og grimmúðlegar deilur okkar og ágreining til hliðar. Ég verð aldrei sammála herra forseta en ég styð hann heilshugar í öllu sem hann gerir enda elska ég land mitt og þjóð.“

Sjónarvottar segja að Obama og vélmennið hafi heilsast alvarleg í bragði í upphafi fundarins og þau sest garðbekk. Fljótlega hafi tekið að hitna í kolunum og eftir fáeinar mínútur mun vélmennið hafa strunsað burt í fússi. Obama mun þá hafa hlaupið vélmennið uppi og þau rifist undir stóru eikartré um skamma hríð. Obama hafi þá stuttu síðar klætt sig hörkulega aftur í frakkann sinn og hreytt einhverju í vélmennið. Vélmennið mun þá hafa gengið á eftir Obama og stuttu síðar féllust þau, að sögn sjónarvotta, í faðma á göngustíg í garðinum.

Deilur Obama forseta og vélmennisins hófust í strax í barnaskóla. Vélmennið var þá í öðrum vinahóp en Obama og ágreiningur þeirra teygði sig inn á síður blaðanna þegar vélmennið og forsetinn stunduðu háskólanám við Harvard. Vélmennið var harður andstæðingur Obama þegar sá síðarnefndi sóttist eftir sæti Illinois-ríkis í öldungadeild Bandaríkjaþings. Þá aðstoðaði vélmennið John McCain í baráttunni um forsetastólinn og talið er að vélmennið hafi lekið ýmsum upplýsingum í fjölmiðla um háskólaár Obama, þar á meðal upplýsingum um meintar krakkreykingar hans.

„Mér þótti tímabært, nú þegar ég er orðinn forseti, að ég og vélmennið myndum grafa stríðsöxina. Svo ég hringdi bara í vélmennið fyrir stuttu og við vorum sammála um að halda sáttafund,“ sagði Obama i viðtali við CNN í gær.

 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623