Föstudagur, 29. Maí 2009 22:39    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur
Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og hvatti stjórnarandstaðan eindregið til þess að það yrði dregið til baka. Samkvæmt höfundi frumvarpsins, Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra, á álagningin að auka tekjur ríkissjóðs og um leið sé hún til þess fallin að gera sjónvarpsefni fjölbreyttara.

„Álagningin á Ilmi er augljóslega nauðsynlegur þáttur í aðhaldsaðgerðum okkar og fyrsta skrefið af mörgum í tekjuöflun ríkissjóðs,“ sagði Steingrímur á Alþingi í gær. „Ilmur Kristjánsdóttir er vissulega hæfileikarík leikkona, en velgengni hennar hefur vaxið of ört á síðustu mánuðum og okkur fannst rétt að ríkið gripi til aðgerða til að jafna aðgengi annarra leikara að ljósvakamiðlunum. Hún er einfaldlega of sýnileg og það að skattleggja verk hennar og hana sjálfa er tilvalin leið til að stýra íslenskri menningu.“

Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu frumvarpið harðlega og voru þeir sammála um að álagningin væri í senn „ótímabær og vitlaus.“ „Vissulega verða aðrir leikarar að koma til móts við aukna velgengni Ilmar, en ég tel hinsvegar að ríkið eigi ekki að stýra því hvaða leikarar séu mest áberandi í sjónvarpinu,“ sagði Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. „Álagningin mun vissulega færa þónokkrar tekjur til ríkissjóðs en um leið mun hún auka skuldir heimilana um hærri upphæð í formi vísitöluhækkunar.“

Ilmur Kristjánsdóttir hefur um nokkurt skeið verið ein ástsælasta leikkona þjóðarinnar og allt frá útskrift hennar úr Leiklistarskóla Íslands árið 2003 hefur hún verið áberandi í fjölmörgum leikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Bráðlega mun Stöð 2 sýna rómantískan gamanþátt eftir Ilmi þar sem hún leikur jafnframt aðalhlutverkið, en hann ber nafnið „Ástríður.“ Mun hann hafa gert útslagið í ákvörðun ríkisstjórnarinnar.

Heimildir Dindils herma að næsta skref ríkisstjórnarinnar verði að skattleggja hljómsveitina Retro Stefson. „Það gerir ekki svona ungu fólki gott að fá of mikla athygli, þótt þau séu rosalega hress á sviði,“ sagði heimildarmaður.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Eyjan.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/747246c5e6b81693f0869e346b390605.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/747246c5e6b81693f0869e346b390605.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623