|
||||
| Mótmælendur brenna Þjóðveldisbæinn |
|
Hópur herskárra mótmælenda lagði eld að Þjóðveldisbænum í Þjórsárdal í nótt. Bærinn brann hratt og örugglega til kaldra kola á stuttum tíma. Talið er að bruninn sé táknrænn fyrir þá kröfu sem uppi er í samfélaginu um nýtt og betra Ísland. „Við áttum ekki séns. Sýningunni var í raun lokið þegar við komum á staðinn. Við sáum ekki einu sinni uppklappið,“ sagði yfirmaður slökkviliðsins í Þjórsárdal stuttu eftir brunann. „Það er fátt erfiðara fyrir okkur slökkviliðsmenn en að fást við bálköst í grasi og ekki hjálpaði til að Þjóðveldisbærinn var uppfullur af húsgögnum úr og plasti. Við erum að skoða aðstæður núna og það er ljóst að hér hefur verið kveikt í.“ Þjóðveldisbærinn var reistur árið 1977 í tilefni af ellefuhundruð ára afmæli Íslandsbyggðar. Ætlunin með byggingu bæjarins var að gefa Íslendingum tækifæri á að kynnast fornum siðum og lífsháttum forfeðra sinna á þjóðveldisöld. Fyrirmynd Þjóðveldisbæjarins voru rústir af fyrrum höfuðbýlinu Stöng í Þjórsárdal. Talið er að sá bær hafi farið í eyði í Heklugosi árið 1104. „Þetta eru sorgartíðindi. Ég styð auðvitað lýðræðið og mótmælendur heilshugar en mér þykir eftirsjá í Þjóðveldisbænum enda ætlaði ég að koma þar við í opinberri heimsókn minni á Mýrdalsjökul síðar í mánuðinum. Ég ætlaði að flytja þar erindi um spennandi ferðalög mín,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands í dag. Hörður Torfason, mótmælafrömuður, segist ekki vita hverjir það voru sem lögðu eld að Þjóðveldisbænum í nótt. „Ég veit ekkert um það. Hins vegar er ljóst að Þjóðveldisbærinn var hluti af gamla Íslandi og á ekkert erindi í það uppbyggingarstarf sem nú er framundan. Íkveikjan í Þjóðveldisbænum er táknræn athöfn. Tákn um að gamla Ísland sé nú liðin tíð og nýtt og betra samfélag muni rísa.“ Ljóst þykir að ríkisstjórnarskiptin hafa ekki nægt til að lægja öldurnar. Enn er gerð skýr krafa um breytingar þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokknum hafi loks verið bolað frá völdum. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segist sýna aðgerðum mótmælenda skilning. „Fólk er reitt. Skiljanlega er það reitt. Það hefur sagt gamla Íslandi stríð á hendur og ég er sannfærð um að nýtt Ísland; án auðmannalotningar, Sjálfstæðisflokksins og Þjóðveldisbæjarins, verður nýtt og betra land.“ |
































