Fimmtudagur, 30. Apríl 2009 13:50    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning
„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna. Þetta var sem sagt bara dregið til baka á allrasíðustu stundu, sem mér fannst náttúrlega bara mjög óheppilegt og dónalegt,“ segir Steingrímur Njálsson, en fyrir vangá forsetaritara var Steingrími tilkynnt um að hann ætti að hljóta hina íslensku fálkaorðu síðasta mánudag. Í raun átti tilkynningin að fara til annars manns, sem neitað hefur að gefa upp nafn sitt.

Örnólfur Thorsson forsetaritari hefur lýst því yfir að mistökin sem gerð voru í þessu máli skrifist alfarið á hans reikning. Það stóð aldrei til að veita Steingrími Njálssyni fálkaorðuna og nafn hans var aldrei nefnt við Ólaf G. Einarsson, formann orðunefndar og fyrrverandi ráðherra. Orðunefndin frétti fyrst af málinu á fundi á þriðjudag og fékk á fundinum skýringar á mistökunum hjá Örnólfi forsetaritara.

Atvikið er að sönnu afskaplega óheppilegt, svo ekki sé meira sagt, og gera má ráð fyrir að samskipti forsetans og Steingríms á Bessastöðum á mánudag hafi verið stirð þegar forsetinn útskýrði fyrir Steingrími ástæður þess að ekki yrði af orðuveitingunni.

Eivör Guðnadóttir, fyrrverandi forstjóri, fyrrverandi ráðherra, fyrrverandi konsúll og fyrrverandi sendiherra, sagði að um væri að ræða ótrúlegan dónaskap af hálfu forsetaembættisins við þegn sinn. Málið allt væri ótrúlegt. Úr því að búið var að tilkynna Steingrími að hann ætti að hljóta orðuna hefði einfaldlega átt að sæma hann orðunni. „Forsetaembættið dregur ekkert svona til baka, það er bara út úr kú,“ sagði Eivör. Innt eftir því hvort þetta kæmi til með að hafa áhrif á samskipti Íslands við önnur ríki í heiminum sagði Eivör: „Nei, ég held til dæmis að í Bandaríkjunum hlæi menn bara að þessu.“

Það er mál manna að forsetaembættið hefði átt að kyngja mistökunum og veita orðuna. Að sögn vitna og sjónarvotta bar Steingrímur sig af stakri prýði og jafnaðargeði, og skálaði við þernur Bessastaða inni í eldhúsi áður en hann ók af vettvangi. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi frá sér opinbera afsökunarbeiðni fyrir hönd embættisins, þegar Logi Bergmann Eiðsson hljóp ásamt myndatökumanni forsetann uppi í Elliðaárdalnum, en þar var Ólafur staddur í hjólreiðatúr í gærdag.

Steingríms-óhappið kemur eins og köld vatnsgusa í andlit forsetaembættisins, því að fyrir helgi voru gerð önnur sambærileg mistök, þegar tilkynning var send til bandaríska sendiherrans Carol van Voorst um að hún ætti að hljóta fálkaorðuna. Hún átti ekki heldur að fá hana.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623