Þriðjudagur, 03. Febrúar 2009 23:56    Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Á stultum virka ég stærri
Mannlegt eðli er margslungið. Ég er 1,97 á hæð og grannur. Stundum er ég ragur við að koma mér á framfæri. Ástæða þess að ég skrifa þetta lesendabréf er eftirfarandi: Í sumar fór konan mín frá mér. Ég var við það að brotna niður þar sem ég stóð á nærbol einum klæða í anddyrinu og grét. En þá rifjaðist upp fyrir mér gömul gæla sem móðir mín var vön að söngla fyrir mig þegar ég var barn:

Á stultum virka ég stærri og stóru vandamálin smærri.

Ég þurrkaði tárin úr hvörmunum og gekk niður í geymslu, þar sem ég geymi dót í kössum. Ég þurrkaði rykið af kassa sem á stóð: „Gamalt barnadót - Steini.“ Síðan fletti ég upp límbandinu með dúkahníf og opnaði kassann. Við mér blöstu ýmis leikföng úr æsku minni: Danskur trésoldáti, Walkman, Símon-segir-leikur, litabækur, tuðra. Og einhvers staðar innan um allar þessar minningar leyndust þær: Gulu stulturnar.

Rödd móður minnar ómaði blítt í höfði mér: Á stultum virka ég stærri og stóru vandamálin smærri.

Ég fikraði mig varfærnislega upp á stulturnar og hélt traustataki um stultna-böndin. Gamalkunnug kyrrðartilfinning hríslaðist um lærin. Á stultunum fann ég enn til sama öryggisins og ég hafði gert í æsku. Ég gnæfði yfir heiminum! Einmanaleikinn hvarf út í veður og vind. Enginn gæti abbast upp á mig. Ég fann hvernig munnurinn gliðnaði í stóra brosvipru meðan ég horfði út um gluggann á stráin bærast í vindinum.

Á stultum virka ég stærri og stóru vandamálin smærri.

Á þessari stundu breyttist líf mitt. Síðan í sumar hef ég lifað hamingjusömu lífi og náð þeim markmiðum sem ég hef sett mér. Vart þarf að nefna að stulturnar eru aldrei utan seilingar. Ég er búinn að ná mér í nýja konu og saman eigum við von á litlum yndishnokka næsta haust. Áður starfaði ég sem beykir, en í dag hef ég söðlað um og hafið nýjan feril, sem sameinar í senn starfsreynslu mína sem tunnusmiður og áhuga minn á englum. Þá hef ég loksins riðið á vaðið og sinni nú öðrum tómstundum af kappi, svo sem endurvinnslu og tísku.

Í dag get ég með sanni sagt að líf mitt hófst að nýju þegar kona mín fór frá mér. Hefði brottför hennar ekki orðið staðreynd hefðu orð móður minnar aldrei rifjast upp. Og þá kemur að meginkjarna þessa stutta spjall: Öllum er unnt að tileinka sér þessi orð sem gert hafa mig að betri manni.

Á stultum virka ég stærri og stóru vandamálin smærri.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623